Könnun

Um hvað ætti næsta blogg að vera?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

neglur

15. nóvember 2011 klukkan 10:36

Vidiði hva?

01. nóvember 2010 klukkan 12:47


Veitið þið hvað ég hata.....sellerí. Sellerí er bara eitt af því ógeðslegasta sem ég veit fæ klíu við tilhugsunina. Þannig að ég borða ekki sellerí eins og fólk gat getið sér til um. Á Skólavörðustígnum er veitingastaður sem heitir Noodle station það vrðist vera rosa góður matur þar því það er alltaf nóg að gera það...og svo er þetta ódýrt. En staðurinn ilmar af sellerí eða einhverju sem minnir mig á sellerílykt...þannig ég á erfitt með að fá mig þarna inn að smakka þessar girnilegu núðlur. Ég óttast það að lykta eins og sellerí það sem eftir er dagsins. Það er neflilega 1 stelpa sem var með mér í tíma fyrir jól sem ég veit að fer stundum þarna og það finnst sko á lyktinni hún ilmar eins og sellerístöng! OG ég sat við hliðina á henni um daginn og ég hélt ég mydni deyja....þessi lykt fór svo í mig...ég veit ekki hvort er verra hún ilmandi af núðlusellerí eða hóruilmvatnið sem hún er stundum með....úff.

 

hóruilmvatn= Sjúklega væminð og sterklyktandi ilmvatn og stelpur sem nota þannig nota oftast góðann slatta af því!

Sofa, borða, skóli , vinna....

27. október 2010 klukkan 18:49

Það er ekki mikið að gerast þessa dagana fyrirsögnin segir allt sem segja þarf þannig að við skulum ekki tala um mig heldur um aðra.
Það getur verið rosalega gaman að "dæma" fólk eftir útlitinu, fékk ein mitt svoleiðis Íslensku verkefni um daginn. Hljómar freker krípí en verkefnið var þannig að þú áttir að fylgjast með einhverri manneskju sem þú þekktir ekki og skrifa persónulýsingu á henni og reyn að íminda þér hvernig þessi manneskja væri og blabbedí blaa...ég gerði þetta verkefni...en ég skáldaði manneskjuna .

Annars þá getur verið gaman að fylgjast með fólki og reyna flokka það eins og ég hef einhvertíma bloggað um fólks flokka. Gaman að flokka svo er líka gaman að kalla fólk sem maður veit ekki hvað heitir eitthvað annað eins og "Má ég spyrja" Strákurinn, Vitlausi strákurinn , Háværi strákurinn og Tuborg gæjinn...ég veit samt hvað þeir heita báðir því þeir eru með mér í tímum en við skulum ekki vera að nefna nein nöfn hérna. Ég hef örugglega talað um vitlausa strákinn mikið eins og vinir og vandamen þekkja ég hef samt ekki bloggað um hann......en ég var að komast að því að hann er að íhuga tölvubraut...úff þá er hann screwd!..hann ætti bara að gefast upp á þessu og verða kerrustrákur í Bónus..eða vinna viðietthvað svipað þar sem er ekki krafist menntunnar...eða almennrar skynsemi...no affence kerrudrengir sem eruð þarna úti. En þið skiljið hvað ég meina þú þarft ekki að hugsa mikið ef þú ert kerrudrengur sem er gott fyrir þennann einstakling. OG já eitt í viðbót um hann stal tölvunni minni aftur í dag!!! Ég blótaði í hljóði og settist við hans tölvu...helv...krakka djöfull. En nóg af honum...hann mun gjalda fyir þetta síðar.....

En pælum aðeins í meira fólki Tuborg gæjanum...það er strákur sem er með mér í 2 áföngum í byrjun annar þá var hann ALLTAF í Tuborg pólóbol...og hann lítur út fyrir að vera svona gaur sem gæti unnið sem dyravörður þannig hann hefur líklega fengið bolinn gefins í vinnunni eða eitthvað þannig. En hann var allaveganna alltaf í þessum bol. En núna er hann eginlega alveg hættur að vera í honum og ég tók eftir því um daginn að hann er bara farinn að dressa sig upp farinn að mæta í skyrtum og svona. þannig mér var farið að lítast betur á málin...en þegar ég sá hann ísömu skirtunni all vikuna þá féll hann aftur í áliti...þetta er neflilega alveg sveittur náungi sme ætti ekki að vera í sömu skyrtunni í meira en 2 daga..nema þvo hana á milli en ég efast um að hann komi heim úr skólanum og skelli skyrtunni í þvott fyrir næsta dag....mig langar að vona það...en það kallast afneitun. Afhverju er ég að pæla í þessu ég veit það ekki... hann virðist samt alveg eiga boli til skiptana hann á allaveganna 2 boli og 1 skyrtu....sem ég hef séð hahaha...

Næsta manneskja..."Má ég spyrja" strákurinn...nafnið segir allt..og hann stendur alltaf fyrir sínu...með sínar endalausu spurningar sem stundum eru óskiljanlegar....

..Og seinasti strákur dagsins...Háværi strákurinn sem á það til að fara rífast við stærðfræðikennarann, hann hefur skoðanir á ýmsu og heldur að okkur öllum langi að heyra þær...svo talar hann líka við alla og ekki nóg með að hann sé með óeðlilega háværa rödd þá er hann svona 2 metrar á hæð! Hvernig er ekki hægt að taka eftir honum...annars er hann ágætur greyið. En eitt fynrið við hann...hann er oft í köflóttum skyrtum og ég sá í gær að hann á úlpu sem ereins og risavaxin og þykk köflóttskyrta með loðhettu...mér fanst þaðógeðslega fyndið...fín úlpa vitðist hlý...en ég æta að giska á að köflótt sé ég mikklu uppáhaldi hjá honum. 

Komið að stelpunum eina kalla ég; Fylgist aldrei með/er aldrei með tösku stelpan aðra kalla ég hóru ilmvatn eða HÓ ilmvatn til styttingar. Ég hljóma eins og ég sé ótrúlega evil en ég segi þetta aldrei við neitt af þessu fólki..þetta er allt í hausnum á mér þangað til núna...núna er þetta á bloggi haha...en það lesa þetta ekki margir þannig líkurnar á að þetta fólki finni síðuna , lesi hana og fatti að ég sé að tala um það eru mjög litlar.
Ég hef ekki mikið um þessar tvær að segja Fylgist aldrei með/er aldrei með tösku stelpan fylgist eginlega aldrei með og ég man ekki eftir að hafa séð hana með skólatösku...hún eyðir tímum í spjall og gvuð má vita hvað...ég skil allaveganna ekki hvernig hún getur mætt með ekkert í skólann...skil það með tölvutíma...en havð með alla hina tímana???? Spes...en já Hó ilmvatn er vinkona hennar..þær eru alltaf að blaðra...ég kalla hana Hóru ilmvart af því að hún er alltaf með eitthvað ógeðslega væmið ilmvatn ég stóð fyrir aftan hana um daginn og ég var að kafna og þessi lykt fékk mig til að sjá fyrr mér 15 ára vændiskonu....

....jæja ég er hætt þessu í bili ég nennti ekki að lesa þetta yfir þannig það eru nokkuð mikklar líkur á mörgum innsláttarvillum...en það er bara gaman þá sjáiði hversu mensk ég erLaughing

Okei...smá snitti...

25. október 2010 klukkan 14:26
Hver er farinn að bíða eftir skemmtilegu bloggi? Það er á leiðinni ég er búin að punkata hjá mér fullt af spennandi hlutum til að setja í næsta blogg...sem er ekki þetta blogg heldur næsta blogg...þetta er bara svona smá sýnishorn...svona svo það líti út eins og ég sé að gera eitthvað í HTML...er komin með ælu uppí kok af verkefninu mínu og er að nýta síðustu mínúturnar í einhverja vitleysu Smile

Svaka fjör.

Snakk kók og skýrslugerð....

19. október 2010 klukkan 00:10

Síðustu 2 tíma hef ég setið við tölvuna, borðað snakk fengið mér einstaka sopa af kóki og pikkað inn skýrslu um Bókband sme ég að að skila kl. 23:59 og það gekk rosalega vel....þangað til núna. Núna á er ég búin að skrifa rúma eins og hálfa blaðsíðu en vandamálið er að skýrslann á að vera 2!!! og það er dreginn af mér 1 heill ef skýrlan er ekki nógu löng! Ég er búin að skrifa allt sem mér dettur mögulega í hug! Ég er búin að lengja orðalag og bulla eitthvað inn í eyðurnar en ég fékk bara mestalagi línur í viðbót! 'otrúlega pirrandi...þannig ég ákvað að fara í smá pásu og nýta tækifærið í að blogga smá og vona að ég fái einhverskonar hugljómun á næstu 40 mínútunum,...ég veil ekki skila þessu alveg á seinasta sjéns....þó ég nálgist það.

Vesen smesen.

En um annað, djöfull er orðið viiiiiðbjóðslega kalt úti! Bara dagurinn í dag BAMM mikklu kaldari en síðustu dagar...g eþurfti að skafa í morgun halló hvað á það að þýða? Mér líkar þetta ekki nú er skammdegisþunglyndið, þreytan og pirringurinn að hellat yfir og maður sér ekki fyrir endann á mirkrinu. Mikil svartsýni frammundan....illa skammdegi.....eins og við Unnur höfum oft velt fyirir okkur á ætti mðaur bara að leggjast í dvala núna og vakna einhvertíma í enda febrúar fekrsur og endurærður. Eins og Múmínálfur.
..Talandi um M'umínáfa þá fór ég að pæla í því um daginn hvernig röddin í kettinum mínum myndi hljóma ef hún hæti talað...já það eru spes pælingar...en maður pælir í ýmsu þegar maður er einn heima með kettinum... en ég held að röddun hjá kettinum mínum væri svoldið eins og í Míu litlu í múmínálfnum...frekjuleg og skerandi í eyrun. Hehe það segir fólki kanski svoldið mikið um köttinn minn...en já hann er frekur.

Úff......já...spurning um að halda áfram með skýrsluna núna....hmmm....iI guess....

see ya

Anna on on again off again bloggarinn

11. október 2010 klukkan 17:13
Já þetta hefur verið erfitt samband milli mín og bloggsíðunar uppá síðkastið en ég held við séum að ná að leysa þennann ágreining á milli okkar og við erum að ná saman aftur, við erum náttulega sálufélagar.

Stundum gleymir maður hvað það er gaman að blogga skrifa eitthvað bull eða tjá skoðanir sínar eða bara pirrast á einhverju sem gerðist í skólanum. Góð útrás svona eins og að skrifa dagbók.

En eins og glöggir sjá þá er þetta 3. bloggið á þessu ári haha ekki mikið blogg undanfarið, en eins og ég hef oft hugsað mér að gera áður þá er ég að spá í að fara í blogg átak þar sem ég er orðin skólamær aftur. Svona þar sem ég hef allt í einu mikið meiri tíma í svona bloggvitleysu. 
 Já að fara aftur í skóla eftir að hafa verið að vinna í 3 ár er svoldið eins og að fara í frí. Allaveganna er það búið að vera þannig hjá mér. Ég allevganna gerði ráð fyrir mikið meiri heimalærdómi og svona, en þetta er bara búið að vera næs! Eða eginlega verí næs!

Þannig þeir sem hafa áhuga á að lesa svona bloggvitleysu geta hugsað sér gott til glóðarinnar.

Fyndið samt hvernig allt hefur þróast, ég man þegar ég byrjaði fyrst með bloggsíðu á gamla fólk.is þá varð ég að blogga daglega hellst tvisvar á dag ég varð bara að skrifa allt sem ég gerði!!! Svo uppgötvaði ég myspace og það kom svona eginlega í staðinn fyrir að blogga ég varð húkt á myspece og missti mig í mafia wars og svoleiðis hahah. OG SVO kom facebook og var nýja myspaceið mitt og facebook er ennþá til staðar, en hvað ætli komi næst?...hmmm...Kanksi bara hætti ég á facebook og blogga bara..hmm.. það er ekki hægt að skrifa nógu mikið í stadus ég þarf svo mikið að tjá mig!....neihh...ég verð áfram á facebook allavegann þangað til það kemur eitthvað nýtt og spennandi. Fcebook er svo yndislegt en samt svo evil...en æ ég elska þennann yndislega tíma þjóf :)
 
En núna í lok bloggs , með því að nota mína níjustu net kunnáttu, þá ætla ég að skella inn g0mlu bloggi frá mér síðan 2005. Þetta er ógeðslega fyndið að lesa finst mér allavega.

Blogg frá Önnu 2005 gjössovell!

Anna Stelpu stelpa....
7. nóvember 2005 - 00:34


....jæaj góða kvöldið litliu kynvillingarnir mínir.....

...já ég ætla að skella mér út úr skápnum....þó að þið hafið kanski fattað þetta langt á undan mér...þá var ég að gera mér almennilega grein fyrir því núna rétt áðan.....

...að....ég er svona algjör stelpu stelpa...fyrir utan einhverja örfáá hluti...

..en já.....ég er einhver svona úber bleik ljóshærða pöddu hatandi barbí....sammt ekki alveg...ég er allaveganna orðin mikið stelpulegri en hérna í svona 7. bekk.......

....magnað hvernig fólk breytist...:P

...eg er sammt ekki örðin algjör barbí :P ekki enþá...ég á enn nokkra ó kvennlega kosti sem ara finnst mj0g fyndnir....Ari ef þú sejir þeim það þá ...refsa ég þér , og ekki á góðann hátt

...og svo þori ég alveg að far út úr húsi þó ég sé ekki búin að mála mig...nema dagana þegar ég er vibbalega mygluð....sme er sjaldan ;).....en oftast r mér alveg sama :P

...og svo já ég elska ullapeysuna mína...þannig ég get ekki verið barbí...sumu þykir svoldið lúða legt að vera í ullapeysu ...en sættið ykkur við það krakkar að er í týsku núna :P Ullar peysur eru bara töff :P

.....ég held að þetta sé svona eiginlega komið......ég er lúðaleg stelpu stelpa:P gaman að vera lúði hihihih, þá get ég stofnað lúða gengi og við munum verða stjórnendur þessa heims!...

...anyway...þetta var pínu tilgnags laust blogg..en verið fegin að ég blogga allavegana....

....góða nótt krakkar...ég læt ykkur vita nýjasta slúðrið frá silfurskottunum sienna ;) vona að þið hafið byrjað að hata þær eins mikið og ég þegar þið sáuð myndirnar hér fyrir neðan :) muhahahahaha......

 

Iss piss

10. janúar 2010 klukkan 15:24

Ég ákvað að halda partí á föstudaginn og það var bara mjög gaman vaknaði svo bara nokkuð hress í gær, minniháttar þynnka ég var eignlega bara ofur hress miða við suma þunnudagaSmile.... en hann Eiríkur get ekki alveg sagt hið sama...

Allveganna svo fórum við í brúðkaup kl. 4 í ókirkjulegustu kirkju sem ég hef komið í! Grafarvogs kirkju...þetta lítur út eins og lítil verslunar miðstöð en ekki kirkja, það eina kirkjulega við hana voru steindu gluggarnir! En allaveganna ég fór að pæla í svolitlu sem ég hef alveg oft pælt í áður en hvenrig fer maður að pissa í svona risavöxnum brúðarkjól? Hún Sigrún systir hans Eiríks sagði mér þá að til þess væru maild of honor alltaf fengnar í bandaríkjunum þær sjá um að halda kjólnum þegar meður pissar....mjög merkt og virt hlutverk í brúðkaupum. Það er samt bara fyndið en, þetta er víst eitthvað sem þarf að gera hvernig á brúðurin annars að komast á klósettið? Það er ekki hægt að halda endalaut í sér ekki miða við allt freyðivínið og það sem verið er að drekka því það er alltaf verið að skála þannig að a endanum mun brúðurin pissa...

Gaman að þessu, langa' bara að deila þessu.

Annars er dagurinn í dag algjör letidagur! En ég er samt að hugsa um að fara í smá gönguferð, kanksi niður í Smáralind eða eitthvað.Smile

Nýtt ár!...misheppnaður jóga tími ..lærtognun?

07. janúar 2010 klukkan 17:37

Gleðilegt ár!

Já þetta ár var sko byrjð með trompi mamma vann frítt í baðhúsið til 10. janúar og gaf mér það þannig að það er eitthvað búið að púla þar var svo heppin að það var fyrir mig + vinkonu þannig ég tók hana Unni með mér.Laughing Við erum búnar að vera rosa duglegar...í byrjun vikunnar allaveganna. Fórum í jóga á þriðjudaginn...eða ekki...við mættum í tímann og komum okkur fyrir á æfingadýnu á gólfinu og biðum spenntar eftir að tíminn byrjaði. En ekkert gerðist....þannig við biðum lengur..ásamt mörgum öðrum spenntum jóga konum...en ekkert gerðist. Svo kom það í ljós að kennarinn hafði lílega gleymt tímanum því ekki náðist í kennarann. Flottur jóga tími þar, við náðum allavegann góðri skökun í þeim tíma.Wink
Svo held ég að ég hafi aðeins farið yfir strikið í líkamsræktinni ég er búin að vers að drepast í lærunum! Sérstakleg öðru...mögulega tognun...sýnir bara í hversu góðu formi eg er.Wink

Þannig ég haltra nú um eins og gömul kona með prik uppí rassinum.

Mjög gaman.

Annars vá mig hefur dreymt alevg þvíkíla vitleysu uppá síðkastið í nótt dreymdi mig til dæmis að ég væri snobbuð hefðarfrú útí Bretlandi, ég man ekki alveg allann drauminn ef það var mikið talað með breskum hreim og mikið snobb í gangi. En í endann á draumnum þá var ég á einhverjum voða fínum veitingastað með einhverjum ég man ekki hverjum einhverjum ekki jafn frægum og ég einstaklingiWink og ég var semsagt að bjóða þessari manneskju út að borða og hún segir við mig
; "wow you know the restaurant is fancy if the menu is the desert..." og ég tók undir þetta og hló með mínum breska snobbkonu hlátri. En já aftasti hluti matseðilsins var einhver voða fínn eftirréttur, það var semsagt svona eins og grátt blað fast aftast á matseðlinum sem var hægt að éta og þotti voða fínt. Það þurfti samt ekkert að borða það en ef maður freistaðist til að borða eða skemma þessa fínu gráu étanlegu blaðsíðu þá þurfti sko að borga það dýrum dómi! OG þessi vinur minn eða hver sem þetta var sme var með mer reif óvart þetta blað, og þá var yfirþjónninn mættu og ekki sæll á svip , en ég fékk að sleppa við að borga þetta vegna þess að ég var svo mikilvægur viðskipta vinur. Þannig að manneskjan sme var með mér þurfti að smakka þetta blað. Mjög spes. Svo var ég greinilega ný búin að gera einnhverskonar skandal þarna úti sem hafði komið í ölum slúðurblöðum Bretlands, ég hef samt ekki hugmynd um hvað það var, eða man það ekki en ég ver að reyna að láta lítið fara fyrir mér útaf þessum rosalega skandal. Svo þegar ég og vinur minn erum að labba  út af veitingastaðnum mætum við einhverjum sem ég þekki...sem lítur svoldið út eins og Britney Spears og er með chiwawa hund með sér á leiðinn inn á veitingastaðinn og ég heilsa henni og hún segir ; "Daddy was shocked and appaled when he read the news! Shoked and appalled! This is shuch a scandal!" Svo strunsar hún í burtu....og meira man ég ekki...Surprised



Stórfurðunlegt.

En nú úí allt annað.

Mér fanst áramótaskaupið alveg hund leiðinlegt, hló ekki mikið af því það var svona eitt og eitt fyndið atriði en loka atriðið var BEST! Páll óskar bjargar íslandi, líka skemmtilegt lag í endann. Mamma sagði einmitt eftir þetta ; " vá hann á örugglega eftir að ná að gera þetta lag vinsælt"...og viti menn ég heyrði þetta svo bara í útvarpinu á leiðinni heim ...mega stuð!Laughing

Sóðasveinar

14. desember 2009 klukkan 21:57
Jæja svona svo við höldum áfram með jólasveina pælingar ...


"Stekkjarstaur kemur fyrstur jólasveinanna. Hann var sagður sjúga mjólk úr kindum en hafði staurfætur á báðum svo heldur gekk það brösuglega
."
- Hann saug kindur Og var með staurfætur, creapy!

"Giljagaur er annar í röð jólasveinanna. Hann faldi sig í fjósinu og fleytti froðuna ofan af mjólkurfötunum þegar enginn sá til. "

- Ekki alveg jafn krípí og stekkjastaur, en hann var samt að laumast í jósinu og stela froðunni!

"Stúfur er þriðji í röð jólasveinanna og jafnframt sá minnsti, eins og nafnið gefur til kynna. Hann var sagður hnupla pönnum og hirða agnirnar sem brunnu fastar við barmana."
- Þessir jólasveinar eru allir þjófar! Illir skeggjaðir kallar sem stálu mat í gamla daga!

"Þvörusleikir er sá fjórði, og er hann afskaplega mjór. Hann hafði yndi af því að sleikja þvörur og skaust í eldhúsið til að nappa þeim úr pottunum þegar eldabuskan vék sér frá." - Líka þjófur! Fóki í gamla daga líka ekki allt of vel að láta stela af sér mat!

"Pottaskefill eða Pottasleikir er fimmti jólasveinninn. Hann skóf eða sleikti skófirnar úr pottunum."
- Ó! óvænt ánægja þessi maður stal líka mat!

"Askasleikir er jólasveinn númer sex í röðinni. Fyrr á öldum, þegar fólk mataðist enn úr öskum, faldi hann sig gjarnan undir rúmum. Þegar askarnir voru lagðir fyrir hunda og ketti til að leyfa þeim að sleikja, varð Askasleikir fyrri til, krækti í þá og hreinsaði innan úr þeim."
- Já þessi stal líka mat! Og er pínu krípí þar sem hann elur sig undir rúmum.... "mamma viltu athuga hvort askasleikir sé nokkuð undir rúminu!

"Hurðaskellir er sjöundi jólasveinninn, hávaðabelgur sem skellir hurðum og truflar svefnfrið fólks. Sums staðar gengur hann enn undir nafninu Faldafeykir en hann á að hafa feykt til földum. Þótt margir tengi það við pilsfalda, var upphaflega átt við faldinn sem konur báru á höfðinu. Nafnið Pilsaþytur hefur því heyrst vegna þessa misskilnings, en ekki náð fótfestu og er hvergi getið í heimildum." -  Hann er bara illur að skella huðum svona og vekja fólk, ef hann mætti til mín yrði ég sko aðeins meira enn pirrí pú...

"Skyrgámur, sá áttundi, sem einnig gengur undir nafninu Skyrjarmur, er stór og sterklegur og sólginn í skyr. Hann leitaði uppi skyrtunnur og át, þar til hann stóð á blístri."
- Annar matarþjófur!

"Bjúgnakrækir er níundi jólasveinninn og afskaplega fimur. Hann vatt sér upp í rjáfrin þar sem bjúgu héngu á eldhúsbitum, sat svo þar og gæddi sér á þeim."
- Enn einn matarþjófurinn, ekki skrítið að fólki hér á dögum áður hai ekki líkað við hann, annasr er mér sama þó hann steli öllum þeim bjúgum sem nokkurtíma koma í minn ísskáp. Oj bara bjúgu!

"Gluggagægir er tíundi jólasveinninn. Hann er vanur að laumast að gluggum og gægjast inn. oft girnist hann þá eitthvað sem hann sér og reynir seinna að komast yfir það."
- Perrvert og þjófur, gluggaperri sem stelur!

"Gáttaþefur er ellefti jólasveinninn. Hann er með gríðarstórt nef og finnur lykt af laufabrauði langt upp á fjöll. Þá trítlar hann til bæja, enda veikur fyrir lyktinni, og stingur hausnum inn um gættina til að drekka hana í sig."
-  Gaur með risa ne sem treður þí inn um dyragættina þína og þefar...þarf ég að segja meira.

"Ketkrókur er tólfti jólasveinninn. Hann var vanur að stinga löngum krókstjaka niður um strompana og krækja sér í hangikjötslæri sem geymd voru upp undir rjáfri. "
- Annar matarþjóur!!!!

"Kertasníkir er þrettándi jólasveinninn. Hann er gríðarlega veikur fyrir tólgarkertum og vill helst éta þau. Hins vegar finnst honum loginn af þeim líka afskaplega fallegur og er því oft tvístígandi." - Stórurðunlegur náungi sem vil éta kerti, mjööög spes! Þessi ætti heima á hæli.



En þetta eru auðvitað allt saman bara þjóðsögur, en hvernig byrjuðu þessar sögur? kanksi voru til einhverjir svona kallar. En pælið aðeins í þessu, nú þykja þessir jólaveinar algör krútt og eru bestu vinir barnanna.

Skólafrí - 2010! :D

10. desember 2009 klukkan 21:37
Jæja þá er önnin búin hjá mér og þá er bara að bíða eftir loka einkunum úr þessum 2 áföngum, en ég hef nú ekki áhyggjur af þeim held ég hafi Aceað þetta! Vá hvað er mikið skemmtilegra að vera proffi heldur en tossi.Laughing Enginn svona "ó fokk ég er búin að eyða 14 vikum og 16 þúsund kalli í ekkert" hnútur í maganum.Laughing Svo var ég að skrá mig í meira fjarnám á næstu önn tek 8 einingar og allt svona freekar leiðinleg fög vonandi gengur það upp. Ég er í Markvissa tölvu notkun, Rekstrartækni og gæða stjórnun og svo Myndlegt og sögulegt samhengi grafískra miðla. Held samt að sé skárra að vera heimaí tölvunni að læra þetta í stað þess að sitja í 80 eða jafnvel 120 mínútur á rassinum að mygla í skólastofu og verkja í hausinn því maður er að rembast svo mikið við að reyna að hlusta og fylgjast með. Það tekur á. Gamana gaman bara klára þetta og svo sumarskóli í FB í sumar og bara harkan og klára þetta og fá rauða húfu árið... 2012 Laughing Þá verður sko partí mamma er búin að loa að halda handa mér veislu ef ég útskifast einhvertíma Wink OG hún skal sko fá að standa við það. Cool

Annars man ég ekki hvort ég var búin að rita niður pælinguna mína um tannálfinn. Ég held ekki annars verur þetta bara dejavu fyrir lesendur ég nenni ekki að fara tékka á því. En já, ég fór að pæla í svona goðsagnaverum um daginn Jólasveinum, páskahérum og tannálfum meðal annars.
Við skulum byrja á tannálfinum. Ókei segjum að hann væri til, svona lítill kall með vængi eða watever sem kemur og tekur barnatennurnar sem maður setur undir koddann sonn og gefur manni pening í staðinn. Hvað er þessi maður að gera við allar þessar barnatennur?!!!! Múrar hann sér tannhúr úr þessu eða býr hanna til skartgripi úr þessu??? Eru barnatennur jafn verðmætar og fílabein í hans heimi kanski?

Ætli sé samkeppni í þessum tannálfa bransa....

Þá er það komið út þetta með tannálfinn.

Pælum nú aðeins í páskahéranum eða páska kanína eða hvað sem þetta er, hann er svosem ekki mikið um talaður hér á landi, en úti í bandaríkjunum er þetta lítil kanína sem felur egg í garðinum hjá fólki. Hvað er þressi kanína að gera með margltuð egg í körfu? OG afhverju felur hún þau í garðinum hjá fólki? Ég tala nú ekki um ef þetta eru súkkulaði egg hvar kemst kanínan í öll þessi egg??? Býr hún þau til sjálf eða verpir hún þeim?? Ég myndi allaveganna ekki borða súkkulaði egg sem kæmi úr  kanínu rassi. Kanski er bara betra að vita ekki sannleikann. En hverjum datt þessi vitleys með eggin og kanínuna í hug, þetta kemur páskunum ekkert við!Surprised

Sjokkerandi.

OG að lokum jólasveinar, íslenski jólaveinar. Einu sinni voru jólasveina bræðirnir 13 vondir, þeir voru að stela mat úr bæjum fólks og kertum og öðru, einhverjir þeirra voru pervertar, einn gægðirst á hlugga fólks hvað var hann að reyna að sjá?? Og annar stóð í dyragættum fólks og þefaði...það er eitthvað svona svolítið sick við það ef maður pæir í því. Börn dögum áður
óttuðust jólasveina jólasveinarnir voru ekki góðir. Á hvaða tímapunkti urðu þeir allt í einu góðir? Og afhverju fóru þeir að gefa börnunum í skó sme þau settu út í glugga???
Hvað sneri jólasveinunum?

Var grýna þá góð einu sinni eða?

Hvernig þróaðist þetta svona?

Hver veit.

Ég er allaveganan hætt í bili.